Hf. Eimskipafélag Íslands sendi í dag frá sér afkomuviðvörun vegna fyrirséðrar gjaldfærslu á 4. ársfjórðungi. Um er að ræða ábyrgð, sem fellur á félagið vegna
gjaldþrots ferðaþjónustufélagsins XL Leisure í England að fjárhæð um 207 milljónir evra, rúmlega 32 milljarðar króna.
Í tilkynningu frá Eimskip segir, að nokkur óvissa hafi verið um kröfuna eftir að Samson eignarhaldsfélag ehf. var úrskurðað gjaldþrota. Eimskip muni færa kröfuna til gjalda á fjórða ársfjórðungi en félagið muni jafnframt vinna að því að ná samkomulagi um kröfuna við eiganda hennar.
Auk gjaldfærslu vegna XL ábyrgðar eru áætlaðar gjaldfærslur vegna virðisrýrnunar eigna, fyrst og fremst vegna viðskiptavildar á frystigeymslustarfsemi á meginlandi Evrópu, sem nú er í sölumeðferð. Einnig hafa fallið á Eimskip ábyrgðir vegna leigugreiðslna XL flugvéla. Eimskip segir, að fjárhæðir ábyrgðanna liggi ekki enn fyrir en viðræður við kröfuhafa standi yfir. Loks sé að geta að vegna óhagstæðrar gengisþróunar, einkum styrkingar Bandaríkjadollars gagnvart Kanadadollar, muni gengistap á fjórða ársfjórðungi vera töluvert hærra en búist var við.
Félagið segir, að þar sem endurskoðun á virðisrýrnunarprófum og ársreikningi félagsins sé ekki lokið sé enn óljóst hver heildargjaldfærsla vegna virðisrýrnunar muni verða á fjórða ársfjórðungi. Ljóst sé þó að hún muni ganga stórlega á eigið fé félagsins og muni þar mest um gjaldfærslu vegna XL ábyrgðar.
Unnið hefur verið að fjárhagslegri endurskipulagningu samstæðunnar undanfarna mánuði með innlendum og erlendum ráðgjöfum, en ráðgert er að henni ljúki á fyrri helmingi ársins 2009. Eimskip segir, að lögð hafi verið áhersla á að selja hluta erlendra eigna sem ekki tengist kjarnastarfsemi félagsins, með það að markmiði að greiða niður skuldir og létta á fjármagnskostnaði. Eimskip sé í viðræðum við helstu lánveitendur sína um frestun vaxtagreiðslna og afborgana lána til að vernda lausafjárstöðu félagsins á meðan á söluferli eigna stendur yfir. Viðbrögð lánveitenda hafi almennt verið góð.
Þá kemur fram í tilkynningu frá Eimskip, að þrátt fyrir að efnahagsástandið á Íslandi hafi verið mjög erfitt hafi félaginu tekist að tryggja lausafjárstöðu félagsins. Reiknað sé með að sölu eigna í Norður-Ameríku ljúki um mánaðarmótin
janúar-febrúar 2009 og létti salan verulega á skuldsetningu félagsins.
Þá hafi gengið vel að aðlaga rekstur félagsins að þeim samdrætti sem hafi verið í flutningum til Íslands. Félagið hafi á undanförnum vikum fækkað skipum í rekstri tengdum Íslandi úr 11 í átta, auk þess að gripið var til uppsagna og launalækkana ásamt öðrum hagræðingaraðgerðum. Áætlað er að þessar aðgerðir skili um 2,4 milljarða króna sparnaði á ári.