Gengi krónunnar styrktist um 0,58% í dag og er gengisvísitalan 203,40 stig en var 204,60 stig við upphaf viðskipta, samkvæmt upplýsingum frá gjaldeyrisborði Glitnis. Bandaríkjadalur stendur í 114,68 krónum, evran er 156,70 krónur, pundið 175,94 krónur og danska krónan 21,033 krónur.