Auður Capital og Björk Guðmundsdóttir hafa stofnað fagfjárfestasjóðinn BJÖRK, sem mun fjárfesta í sprotafyrirtækjum á Íslandi. Stærð sjóðsins ræðst af áhuga fjárfesta en Auður Capital verður rekstraraðili Bjarkarsjóðsins og hefur þegar lagt 100 milljónir króna í sjóðinn.
Sjóðurinn er hugsaður sem farvegur fyrir fjárfesta sem hafa áhuga á að beina fé í nýsköpun og frumkvöðlastarfsemi og taka þannig virkan þátt í uppbyggingu á Íslandi um leið og þeir ávaxta fé sitt, að því er segir í tilkynningu.
„Fjárfest verður í fyrirtækjum sem eru að leysa úr læðingi verðmæti sem byggja á sérstöðu Íslands og eru sjálfbær, þ.e.a.s. standa fjárhagslega undir sér, stunda samfélagslega ábyrga viðskiptahætti og eru umhverfisvæn. Sérstakur áhugi er á fjárfestingum sem nýta menntun okkar og menningu og búa yfir nýrri tækni og/eða nýrri nálgun," samkvæmt tilkynningu.