Seðlabankinn breytir vöxtum

Seðlabanki Íslands.
Seðlabanki Íslands. mbl.is/Golli

Bankastjórn Seðlabanka Íslands hefur ákveðið að auka bilið á milli hæstu og lægstu vaxta bankans. Þessi aðgerð felur ekki í sér breytingu á peningastefnu bankans og stýrivextir bankans verða óbreyttir, 18%. Vaxtabreytingunum er hins vegar ætlað að stuðla að auknum viðskiptum á millibankamarkaði með krónur. 

Vextir á viðskiptareikningum fjármálafyrirtækja í Seðlabankanum verða lækkaðir úr 17,5% í 15% (21. desember n.k.) , vextir á daglánum hækkaðir úr 20% í 22% (18. desember) og vextir innstæðubréfa og bundinna innlána lækkaðir úr 17,75% í 15,25% (29. desember). 

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK