Gengi krónunnar lækkaði mikið í dag eða um 4,37%. Gengisvísitalan var 207,96 stig við upphaf viðskipta en lokaði í 217,45 stigum, samkvæmt upplýsingum frá gjaldeyrisborði Glitnis. Gengi Bandaríkjadals er 119,15 krónur, pundið er 182,18 krónur, evran er 171,09 krónur og danska krónan 22,966 krónur.