Fyrrum bankastjórar veita skuldunautum ráðgjöf

Hreiðar Már Sigurðsson.
Hreiðar Már Sigurðsson. mbl.is

Tveir af fyrrum forstjórum gamla Kaupþings aðstoða nú skuldunauta bankanna í gegnum ráðgjafarfyrirtæki sem þeir reka. Fyrirtækið heitir Consolium ehf og sérhæfir sig í viðskipta- og rekstrarráðgjöf.

Fyrirtækið er meðal annars rekið af þeim Ingólfi Helgasyni, fyrrverandi forstjóra Kaupþings á Íslandi, og Hreiðari Má Sigurðssyni, fyrrverandi forstjóra Kaupþings samstæðunnar. Þetta kemur fram á Vísi.

Ingólfur og Hreiðar bjóða nú fyrirtækjum og einstaklingum sem skulda bönkunum upp á ráðgjafarþjónustu við að semja um skuldir. Hreiðar Már staðfesti þetta í samtali við fréttastofu Stöðvar 2 og Vísis en vildi að öðru leyti ekki láta hafa neitt eftir sér um málið.

Ingólfur Helgason,
Ingólfur Helgason,
mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK