Eignarhlutur Stoða, áður FL Group, í hollenska drykkjarvörufyrirtækinu Refresco hefur verið í söluferli í um fjóra mánuði undir stjórn Rothschild fjárfestingarbankans. Fjárfestingar- og umbreytingarfyrirtækin Blackstone og Lion Capital hafa sýnt áhuga á að kaupa eignarhlutinn.
Júlíus Þorfinnsson, talsmaður Stoða, staðfesti í samtali við Mbl.is að Blackstone og Lion Capital séu meðal hugsanlegra kaupenda á 49% eignarhlut Stoða í Refrosco, en eins og fram kom frá í Morgunblaðinu í dag, greindi breska blaðið Telegraph frá áhuga fyrirtækjanna.
Segist Júlíus vona að ekki sé langt í að samkomulag náist um sölu eignarhlutarins. Í ljósi stöðunnar hafi Refrosco borið skaða vegna erfiðrar stöðu Stoða og íslensks efnahagslífs, því sjái Stoðir það sem skynsamlega ráðstöfun að selja sem fyrst áður en skaðinn verði meiri.