Gengi krónunnar hefur veikst um 1,1% það sem af er degi. Gengisvísitalan er 227,50 stig en var 225 stig við upphaf viðskipta í morgun, samkvæmt upplýsingum frá gjaldeyrisborði Glitnis. Gengi Bandaríkjadals er 125,90 krónur, pundið 185,10 krónur, evran 179,90 krónur og danska krónan 24,14 krónur.