Kaupsamningum fækkaði um 60%

mbl.is

Um 6.200 kaupsamningum var þinglýst árið 2008 og námu heildarviðskipti með fasteignir um 180 milljörðum króna.  Meðalupphæð á hvern kaupsamning var um 29 milljónir króna. Árið 2007 var veltan 406 milljarðar króna, fjöldi kaupsamninga tæplega 15.300 og meðalupphæð á hvern kaupsamning 26,7 milljónir króna. Heildarvelta fasteignaviðskipta hefur því minnkað um tæplega 55% á milli ára og kaupsamningum fækkað um tæplega 60%.

Ekki hefur jafn fáum kaupsamningum verið þinglýst á Íslandi á einu ári í fimmtán ár en árið 1993 var 5.277 kaupsamningum þinglýst. Árið 2003 var veltan síðast jafn lítil og í ár en það ár nam hún tæpum 163 milljörðum króna.

Sé litið til höfuðborgarsvæðisins stefnir heildarupphæð þinglýstra kaupsamninga í um 115 milljarða króna, fjöldi kaupsamninga verði um 3.500 og meðalupphæð kaupsamnings verði tæpar 33 milljónir króna. Heildarupphæð þinglýstra kaupsamninga á höfuðborgarsvæðinu á árinu 2007 var rúmlega 310 milljarðar króna og kaupsamningar rúmlega 10.000. Meðalupphæð samninga árið 2007 var um 31 milljón króna, að því er segir á vef Fasteignamats ríkisins.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK