Gengisvísitala krónunnar hækkaði um 0,23% í dag en gengisvísitalan byrjaði í 216,30 stigum en var við lokun gjaldeyrismarkaða 215,81 stig, samkvæmt upplýsingum frá gjaldeyrisborði Glitnis. Bandaríkjadalur stendur í 121,10 krónum, evran er 168,77 krónur, pundið 175,68 krónur og danska krónan er 22,653 krónur.