29 milljarða halli fyrstu 11 mánuði 2008

Alls voru fluttar inn vörur fyrir 40,6 milljarða í nóvember
Alls voru fluttar inn vörur fyrir 40,6 milljarða í nóvember

Vörur voru fluttar út fyrir tæpa 43,2 milljarða króna í nóvember sl. og inn fyrir 40,6 milljarða króna, samkvæmt útreikningum Hagstofu. Vöruskiptin í nóvember, reiknuð á fob verðmæti, voru því hagstæð um 2,5 milljarða króna. Í nóvember 2007 voru vöruskiptin hagstæð um 5 milljarða króna á sama gengi.

Fyrstu ellefu mánuðina 2008 voru fluttar út vörur fyrir 413,1 milljarð króna en inn fyrir 442,0 milljarða króna. Halli var á vöruskiptunum við útlönd, reiknað á fob verðmæti, sem nam 28,9 milljörðum en á sama tíma árið áður voru þau óhagstæð um 111,6 milljarða á sama gengi. Vöruskiptajöfnuðurinn var því 82,7 milljörðum króna hagstæðari en á sama tíma árið áður.

Fyrstu ellefu mánuði ársins 2008 var verðmæti vöruútflutnings 26,8 milljörðum eða 6,9% meira á föstu gengi  en á sama tíma árið áður. Iðnaðarvörur voru 51,9% alls útflutnings og var verðmæti þeirra 41,3% meira en árið áður. Sjávarafurðir voru 36,4% alls útflutnings og var verðmæti þeirra 7,9% minna en á sama tíma árið áður.  Mest aukning var í útflutningi á áli en á móti kom samdráttur í útflutningi sjávarafurða, auk þess sem sölur á skipum og flugvélum til útlanda drógust saman. Fluttir voru út fólksbílar og flutningatæki til atvinnurekstrar fyrir 5,1 milljarð janúar-nóvember 2008.

Fyrstu ellefu mánuði ársins 2008 var verðmæti vöruinnflutnings 55,9 milljörðum eða 11,2% minna á föstu gengi  en á sama tíma árið áður. Mestur varð samdrátturinn í innflutningi á flutningatækjum, aðallega fólksbílum og flugvélum og í innflutningi á fjárfestingavöru og neysluvöru annarri en mat- og drykkjarvöru en á móti kom aukning í innflutningi á hrá- og rekstrarvörum og í verðmæti innflutnings á eldsneyti og smurolíum.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK