Samkomulag var gert í dag um að Seðlabanki Íslands framselji ríkissjóði kröfur á fjármálafyrirtæki að fjárhæð 345 milljarðar króna. Er þetta gert á grundvelli heimildar í fjáraukalögum fyrir árið 2008.
Gegn yfirtöku krafnanna greiðir ríkissjóður 270 milljarða króna með verðtryggðu skuldabréfi til 5 ára, með 2,5% ársvöxtum.