Fjárfestirinn Beat Siegenthaler, sem hefur stundað mikil viðskipti með íslenskar krónur, ráðleggur viðskiptavinum sínum að halda í þær krónur, sem þeir hafa undir höndum. Í bréfi, sem Morgunblaðið hefur undir höndum, segir hann að útlit sé fyrir styrkingu krónu á þessu ári og betra sé að bíða með að selja krónur þar til það gerist.