Eimskip hefur sent frá sér nýja afkomuviðvörun og segir, að eigið fé félagsins hafi veirð neikvætt í lok ársins 2008 um allt að 150 milljónir evra, jafnvirði rúmlega 25 milljarða króna.
Eimskip sendi í desember frá sér afkomuviðvörun vegna fyrirséðrar gjaldfærslu á 4. ársfjórðungi. Þar kom m.a. fram að endurskoðun á virðisrýrnunarprófum félagsins væri ekki lokið og því óljóst hver heildargjaldfærsla vegna virðisrýrnunar myndi verða á 4. ársfjórðungi. Nú sé ljóst, að þörf sé á frekari niðurfærslu eigna þ.m.t. hluta af viðskiptavild. Aðrar eignir félagsins hafi auk þess verið endurmetnar og verðmæti þeirra fært niður í bókum félagsins.
Í tilkynningu, sem birtist nú undir kvöld á vef Kauphallar Íslands segir, að viðskiptavild félagsins hafi vaxið mjög á síðustu árum í kjölfar mikilla fjárfestinga í fyrirtækjum. Í samræmi við alþjóðlega reikningsskilastaðla hafi verið framkvæmd virðisrýrnarpróf m.a. á viðskiptavild félagsins. Í ljósi aðstæðna á mörkuðum og vegna varfærnissjónarmiða þurfi að færa niður viðskiptavild félagsins. Þettaleiði til þess að eigið fé félagsins verði neikvætt í árslok 2008 um allt að 150 milljónir evra.
Fram kemur að Eimskip hafi náð samkomulagi við mikinn meirihluta skuldabréfaeigenda um frestun vaxtagreiðslna og afborgana. Félagið hafi einnig náð undirrituðu samkomulagi við hluta af öðrum innlendum og erlendum lánveitendum um frestum vaxtagreiðslna og afborgana. Félagið sé jafnframt í viðræðum við aðra lánveitendur og hafi viðbrögð lánveitenda almennt verið jákvæð.
Gert er ráð fyrir að sölu eigna í Norður-Ameríku ljúki í febrúar 2009 og segir Eimskip að salan muni létta verulega á skuldsetningu félagsins. Ekki sé ljóst hvert söluverðmætið verði og því sé enn óljóst hver áhrifin á sölunni verði endanlega.
Eftir söluna á eignum félagsins í Norður-Ameríku verður farið í frekari viðræður við helstu lánveitendur um fjárhagslega endurskipulagningu. Félagið hafi nú þegar hafið undirbúning að viðræðum við lánveitendur sem snúi að því að styrkja eiginfjárstöðu félagsins og tryggja framtíðarrekstur þess sem
skipafélags.
Í tilkynningunni segir, að þrátt fyrir erfiða skuldastöðu félagsins og óhagstæð skilyrði á fjármálamarkaði gangi grunnrekstur félagsins vel. Vel hafi gengið að aðlaga rekstur félagsins að þeim samdrætti sem hafi verið í flutningum til Íslands.
Þá sé lausafjárstaða félagsins tryggð og stöðug.