Metafgangur af vöruskiptum

Verðmæti útflutts sjávarafla hefur aukist.
Verðmæti útflutts sjávarafla hefur aukist.

Samkvæmt bráðabirgðatölum fyrir desember 2008 nam útflutningur 54 milljörðum króna og innflutningur 29,9 milljörðum króna. Vöruskiptin í desember, reiknuð á fob verðmæti, voru því hagstæð um 24,1 milljarð króna samkvæmt bráðabirgðatölum.

Hagstofan segir, að mánaðarlegar tölur um vöruskiptin á föstu gengi séu til síðan 1992 og hafi afgangur á vöruskiptunum í einum mánuði ekki verið stærri á því tímabili.

Samkvæmt bráðabirgðatölum fyrir desember gæti hallinn á vöruskiptunum við útlönd á árinu 2008 því verið um 4,8 milljarðar. Niðurstaða ársins sé hinsvegar mikilli óvissu háð þar sem tölur gætu breyst vegna ársyfirferðar auk þess sem uppgjör verslunar með skip og flugvélar sé ekki fyrirliggjandi nú.

Þá segir Hagstofan að vísbendingar séu um meira verðmæti útfluttra sjávarafurða og áls en minna verðmæti innflutts eldsneytis, hrá- og rekstrarvara og neysluvara annarra en mat- og drykkjarvara í desember 2008 miðað við nóvember 2008.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK