Ríkja Evrópusambandsins bíða slæmar fréttir á mánudaginn, að sögn AFP-fréttastofunnar. Þá birtir framkvæmdastjórn ESB, birtir nýjustu efnahagsspá sína.
Í kjölfar nýju efnahagsspárinnar munu fjármálaráðherrar ríkjanna funda um það hvort ESB ríkin séu að gera nóg til að forðast verri kreppu.
Efnahagstölur hafa farið hríðversnandi, segir AFP, frá því að framkvæmdastjórnin birti efnahagsspá sína í nóvember, en þá var því spáð að 0,2% hagvöxtur yrði á evrusvæðinu í ár.