Kaup hins konungsborna Al-Thani frá Katar á tuttugu og fimm milljarða króna hlut í Kaupþingi kostuðu bankann sjálfan 37,5 milljarða, að því fram kom í frétt Stöðvar tvö í kvöld. Hvorki Al-Thani né vinur hans Ólafur Ólafsson, einn stærsti hluthafi Kaupþings, sem lánaði honum tólf og hálfan milljarð fyrir kaupunum, töpuðu krónu.
Fréttastofan segir að Al-Thani hafi fengið helming verðmætis fimm prósenta hlutar í Kaupþingi, tólf og hálfan milljarð króna, lánaðan hjá Kaupþingi án þess að leggja fram önnur veð fyrir láninu en bréfin sjálf.
Hinn helminginn fékk hann lánaðan frá félagi í eigu Ólafs Ólafssonar sem er skráð á Bresku Jómfrúareyjum.