Verð á hráolíu fór niður fyrir 34 dali tunnan í viðskiptum í Asíu í morgun. Vegna birgðasöfnunar verða miðlarar að selja birgðir þar sem ekki er lengur rúm fyrir olíu í geymslum.
Miðlarar segja, að sum olíufélög geymi nú olíu í tankskipum, sem hætt er að nota til olíuflutninga.