Seðlabanki Kanada hefur lækkað stýrivexti sína um 0,5 prósentustig í 1,0%. Eru vextirnir nú þeir lægstu í sögu bankans. Segir í tilkynningu bankans að þetta sé gert til að stuðla að því að vinna á móti samdrætti í efnahagslífinu.
Frá því seðlabanki Kanada hóf að lækka stýrivexti sína fyrir 13 mánuðum síðan hefur hann samtals lækkað þá um 3,5 þrósentustig.