Úrvalsvísitala Kauphallarinnar, OMXI6, lækkaði um 0,17% í viðskiptum dagsins og stendur vísitalan nú í 861,90 stigum. Straumur-Burðarás hækkaði um 0,82%, Færeyjabanki um 0,89% og Icelandair um 0,38%, en Marel lækkaði hins vegar um 1,66%, Eimskip um 0,89% og Össur um 0,52%. Velta með hlutabréf í kauphöllinni var tæpar 87 milljónir króna en með skuldabréf 10,3 milljarðar króna.