Gengi krónunnar styrktist um 0,97% í dag en gengisvísitalan stendur í 205 stigum en var 209 stig við lokun í gær. Gengi Bandaríkjadals er 118,70 krónur, pundið er 168,18 krónur, evran 156,33 krónur og danska krónan 20,97 krónur, samkvæmt upplýsingum frá gjaldeyrisborði Glitnis.