Krónan styrktist í dag um 2,93%. Gengisvísitalan er nú 199 stig, en hún var 205 stig við upphaf viðskipta. Þetta er níundi dagurinn í röð sem krónan styrkist. Frá 16. janúar hefur krónan styrkst um 10%.
Gengi Bandaríkjadals er nú 114,58 kr., evran er 151,80 kr., pundið er 164,04 kr. og danska krónan kostar nú 20,38 kr.