Gengisvísitala krónunnar stendur í 198 stigum en var 199 stig við upphaf viðskipta í morgun. Það þýðir að gengi krónunnar hefur styrkst um 0,5% í dag. Gengi Bandaríkjadals er 115,04 krónur, pundið 163,17 krónur, evran er 150,38 krónur og danska krónan 20,17 krónur.