Baugur í greiðslustöðvun

Höfuðstöðvum Baugs við Túngötu var lokað í síðustu viku.
Höfuðstöðvum Baugs við Túngötu var lokað í síðustu viku. mbl.is/Árni Sæberg

Baugur Group hf. og nokkur dótturfélaga þess, þ.á m. BG Holding ehf., fóru í morgun fram á það við Héraðsdóm Reykjavíkur að félögunum yrði veitt heimild til greiðslustöðvunar. Þetta er gert til að vernda eignir fyrirtækjanna sem og allra lánardrottna þeirra.

Í tilkynningu kemur fram að stjórn Baugs ákvað samhljóða að fara þessa leið í kjölfar ákvörðunar Landsbankans í gær að hætta viðræðum um mögulega endurskipulagningu Baugs.

Í síðustu viku var tilkynnt um að Baugur Group hefði sagt upp öllum 15 starfsmönnum sínum á Íslandi og ætli að loka skrifstofu sinni við Túngötu í Reykjavík. Þá yrði starfsmönnum félagsins í Bretlandi fækkað um helming, úr 29 í 16.

Stærstur hluti eigna félagsins er í Bretlandi en engar eignir eru á Íslandi. Baugur tilkynnt sumarið 2008 að starfsemin yrði færð frá Íslandi. Baugur Group rekur verslanir í Bretlandi og Danmörku.

BG Holding, fjárfestingafélag Baugs, er hluthafi í Iceland Food Group og House of Frasier. 

Jón Ásgeir Jóhannesson
Jón Ásgeir Jóhannesson mbl.is/Kristinn
mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK