Glitnir gjaldfellir öll lán Baugs

Skilanefnd Gamla Glitnis hefur í dag ákveðið að gjaldfella öll lán Baugs Group og tengdra félaga. Er þetta gert í framhaldi af ákvörðun skilanefndar Landsbanka Íslands um að óska eftir greiðslustöðvun hjá BG Holding, dótturfélagi Baugs í Bretlandi.

Segist skilanefnd Glitnis ekki telja að greiðslustöðvun Baugs Group á Íslandi þjóni tilgangi og hugmyndir sem forsvarsmenn Baugs hafi kynnt um fjárhagslega endurskipulagningu séu óraunhæfar og óframkvæmanlegar.

Í tilkynningu segir, að skilanefnd Glitnis telji að við þær aðstæður sem nú eru uppi sé hagsmunum bankans best borgið með því að hann taki yfir þá eignarhluti í Baugi sem Gamli Glitnir hafi að veði til tryggingar lánum sínum til félagsins.

Fram kemur að skilanefnd Glitnis hafi haft fjárhagslega stöðu Baugs til skoðunar um nokkurra mánaða skeið og í þeim efnum notið ráðgjafar PricewaterhousCoopers og Deloitte í Bretlandi. Þrátt fyrir fjölbreyttar aðgerðir undanfarna 12 mánuði, þar sem allir hafi lagst á eitt um að styðja við félagið, blasi við í ljósi mjög veikrar fjárhagsstöðu að félagið muni ekki geta gert upp skuldir sínar við bankann.  

„Skilanefnd Glitnis hefur haft til skoðunar þær hugmyndir sem forsvarsmenn Baugs kynntu fyrir íslenskum lánastofnunum. Það er mat skilanefndarinnar og ráðgjafa hennar, PricewaterhouseCoopers og Deloitte í Bretlandi, að þær hugmyndir séu í senn óraunhæfar og óframkvæmanlegar. Það er jafnframt mat ofangreindra ráðgjafa og skilanefndar Glitnis, að besta leiðin til að gæta hagsmuna bankans við núverandi aðstæður, sé að vinna með öðrum veðhöfum að því að hámarka verðmæti þeirra eigna bankans sem tengjast Baugi. Með þessum aðgerðum er meðal annars verið að verja hagsmuni þeirra fyrirtækja sem Baugur er hluthafi í á Bretlandseyjum og þeirra tugþúsunda sem hjá þeim starfa.

Þar sem ljóst er að Baugi mun ekki takast að efna skuldbindingar sínar við gamla Glitni og þar sem fyrir liggur að aðrar fjármálastofnanir munu ekki taka þátt í endurskipulagningu félagsins er það mat skilanefndar Glitnis að fyrrnefndar aðgerðir séu óhjákvæmilegar. Skilanefndin telur jafnframt að eins og málefnum félagsins er nú komið þjóni umbeðin greiðslustöðvun Baugs Group á Íslandi ekki tilgangi," segir í tilkynningu Glitnis.

Ekki krafist sölu á BG Holding

Í tilkynningu frá skilanefnd gamla Landsbankans segir m.a. að bankinn telji hagsmunum sínum best borgið með því að hlutafjáreignir BG Holding, dótturfélags Baugs í Bretlandi, verði ekki seldar og að friður skapist um um rekstur þeirra fyrirtækja sem séu í eigu félagsins.

Komið hafi  fram frá stjórnendum fyrirtækjanna, að skipun tilsjónarmanns yfir BG Holding hafi ekki áhrif á afkomu þeirra og að daglegur rekstur verði óbreyttur. Skilanefndin styðji þetta álit og vonist til að fyrirtækin verði fyrir lágmarks raski svo að stjórnendur geti einbeitt sér að daglegum rekstri. Séu stjórnendur Baugs og skilanefndin sammála um að gera allt sem í þeirra valdi stendur til að tryggja stöðugleika þeirra rekstrarfélaga sem um ræðir.

Þá áréttar skilanefndin, að hún hafi engin áform um að krefjast sölu eigna BG Holding. Það sé hagur Gamla Landsbankans og allra kröfuhafa að til langs tíma litið fáist sem mest fyrir eignir bankans.

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Loka