John Thain, sem var forstjóri Merrill Lynch, lét flikka upp á skrifstofuna sína nokkrum mánuðum áður en hann fékk milljarða hjálp frá ríkinu sl. haust. Kostnaður: 1,2 milljónir dollara eða um 140 milljónir króna. Ruslakarfan ein kostaði um 1400 dollara! Þegar forstjórar bílarisanna þriggja, GM, Ford og Chrysler, fóru til Washington frá Detroit til að biðja þingið um aðstoð komu þeir á einkaþotum.