Guardian spáir erfiðum vetri á Íslandi í grein sem birt er á vef breska blaðsins í dag. Þar er fjallað um efnahagsástandið á Íslandi og þær miklu breytingar sem átt hafa sér stað á stuttum tíma hvað það varðar. Vísar Guardian í ræðu Ólafs Ragnars Grímssonar, forseta Íslands, frá árinu 2005 þar sem hann lýsir efnahagsundrinu Íslandi.
„Íslendingar taka áhættu. Þeir eru djarfir og ágengir. Kannski er það vegna þess að ef þeim mistekst þá geta þeir alltaf farið aftur til Íslands þar sem allir geta notið góðs lífs í opnu og öruggu kerfi," sagði Ólafur Ragnar í ræðu sem hann flutti í fjármálahverfi Lundúnaborgar árið 2005.
Segir Guardian að margt hafi breyst á Íslandi frá þessum tíma. Bankarnir hafi hrunið og krónan líka. Dótturfélag Baugs í Bretlandi, BG Holding sé í greiðslustöðvun og fjöldi breskra verslana blandist þar inn.
Haft er eftir Össuri SKarphéðinssyni, utanríkis- og iðnaðarráðherra, að margir hafi tekið undir orð Ólafs Ragnars á sínum tíma, bæði stjórnmálamenn og fjölmiðlafólk. „Ég hefði eflaust tekið þátt í kórnum ef ég væri ekki einfaldur líffræðingur."
Össur bendir á að viðhorf barna hafi breyst á undanförnum árum og vísar til þess að dóttir hans, tólf ára, hafi viljað verða yfirmaður í banka en þegar hann hafi verið barn þá var draumurinn annar.
Össur segir í viðtalinu við Guardian að það sé enginn efi í hans huga um að Bretar hafi notað krafta sína til þess að hafa áhrif á Alþjóða gjaldeyrissjóðinn vegna Icesave reikinga Landsbankans.