Engar breytingar hafa orðið á gengisvísitölu krónunnar það sem af er degi og stendur vísitalan í 193 stigum, samkvæmt upplýsingum frá gjaldeyrisborði Glitnis. Gengi Bandaríkjadals er 112,06 krónur, pundið er 166,09 krónur, evran 145,28 krónur og danska krónan er 19,49 krónur.