Starfsmenn Alþjóðagjaldeyrissjóðsins telja að þótt aðgerðir í peningamálum hafi skilað árangri á Íslandi sé enn sé of snemmt að breyta um stefnu. Með auknum stöðugleika á gjaldeyrismarkaði og í verðlagi geti skapast tækifæri til þess að losa smám saman um hömlur á fjármagnsflæði og lækka vexti í litlum skrefum.
Þetta kemur fram í skýrslu starfsmanna Alþjóðagjaldeyrisssjóðsins, sem hefur nú verið birt að beiðni íslenskra stjórnvalda, en skýrslan byggir á vinnu sendinefndar sjóðsins sem var hér á landi í desember. Meginniðurstaða skýrslunnar er sú að áætlunin gangi almennt vel, heildarmarkmið áætlunar íslenskra stjórnvalda og sjóðsins séu enn raunhæf, en nauðsynlegt að vinna af einurð til þess að árangur náist.
Brýnasta verkefnið til skamms tíma var að koma ró á gengi krónunnar og hefur það gengið að mestu eftir að mati gjaldeyrissjóðsins. Þá voru fjárlög ársins 2009 einnig í samræmi við áætlunina og mótun stefnu í ríkisfjármálum til meðallangs tíma er hafin. Endurskipulagningu bankakerfisins miðar sömuleiðis í rétta átt en þar eru þó meiriháttar verkefni framundan að mati starfsmanna sjóðsins. Er það mat í samræmi við skoðun íslenskra stjórnvalda á málinu.
Forsætisráðuneytið segir, að nokkur töf hafi orðið á fjármögnun bankanna vegna þess hve viðamikla vinnu þurfi að klára áður en hún verði möguleg. Frá því starfsmenn sjóðsins voru hér í desember hafi vinnan hins vegar gengið mun betur en fram að þeim tíma. Endurskoðunarfyrirtækið Deloitte meti nú eignir og skuldir bankanna og alþjóðlega ráðgjafafyrirtækið Oliver Wyman muni yfirfara þá vinnu alla til samræmis við þær kröfur sem samkomulagið við Alþjóðagjaldeyrissjóðinn geri ráð fyrir. Starfsmönnum sjóðsins verði kynnt staða málsins þegar þeir koma til landsins í febrúar og þá verði framvinda málsins metin.
Ráðuneytið segir, að í heild megi því segja að í meginatriðum gangi vonum framar að framfylgja þeirri metnaðarfullu áætlun sem stjórnvöld settu fram í samstarfi við Alþjóðagjaldeyrissjóðinn um endurreisn íslensks efnahagslífs. Ljóst sé að aðstæður kunni að breytast hratt og því mikilvægt að geta brugðist við þeim breytingum. Það hafi tekist með ágætum fram til þessa.