Velta í dagvöruverslun dróst saman um 6,8% á föstu verðlagi í janúar síðastliðnum miðað við sama mánuð árið áður. Velta í dagvöruverslun hefur ekki verið minni frá því í byrjun árs 2007 að raunvirði þó neytendur verji mun fleiri krónum til innkaupanna, samkvæmt nýjum tölum frá Rannsóknarsetri verslunarinnar.
Velta dagvöru á breytilegu verðlagi jókst um 23,1% á einu ári. Í janúar síðastliðnum voru fimm helgar en fjórar í janúar í fyrra sem hefði átt að leiða til aukinnar sölu en raunin varð samdráttur. Verð á dagvöru hækkaði um 32% á einu ári, frá janúar 2008 til janúar 2009.
Sala á áfengi jókst hins vegar um 2,2% í janúar miðað við sama mánuð árið áður á föstu verðlagi og um37,6% á breytilegu verðlagi. Verð á áfengi hækkaði um 34.6% í janúar síðastliðnum miðað við sama mánuð árið áður samkvæmt verðmælingu Hagstofu Íslands. Ástæðu aukinnar áfengissölu má líklega rekja til þess að í ár voru fimm helgar í janúar en í fyrra voru þær fjórar, segir í tilkynningu frá Rannsóknarsetri verslunarinnar.
Velta fataverslunar var 11,3% minni í janúar á föstu verðlagi miðað við sama mánuð í fyrra en jókst um 17,8% á breytilegu verðlagi á sama tímabili. Verð á fötum hækkaði um 32,8% á einu ári.
Einnig varð samdráttur í skóverslun. Þannig minnkaði velta skóverslunar um 18,0% í janúar á föstu verðlagi og um 2,2% á breytilegu verðlagi miðað við sama mánuð í fyrra. Það er til marks um samdrátt í skóverslun í janúar síðastliðnum að hún var 8% minni en í janúar 2007, mælt á föstu verðlagi. Verð á skóm hækkaði um 19,2% á síðastliðnum 12 mánuðum.
Í janúar minnkaði velta í húsgagnaverslun um 22% á föstu verðlagi miðað við janúar í fyrra og jókst um 2,1% á breytilegu verðlagi. Verð á húsgögnum hefur hækkað um 30,9% á síðastliðnum 12 mánuðum.