Hráolíuverð hækkaði um 13 sent tunnan í 37,64 dali í Asíu í morgun. Verð á Brent Norðursjávarolíu hefur hækkað um tíu sent í Lundúnum í morgun og er 44,91 dalur.
Mikill verðmunur á milli markaða, það er Lundúna og NYMEX í New York skýrist einkum af samdrætti í eftirspurn eftir hráolíu, líkt og annarri hrávöru í Bandaríkjunum.