Gengisvísitalan breyttist ekkert í dag og stendur í 191,5 stigum en fremur rólegt var á gjaldeyrismarkaði í dag. Gengi Bandaríkjadals er 113,87 krónur, pundið 163,08 krónur, danska krónan 19,24 krónur og evran 143,75 krónur, samkvæmt upplýsingum frá gjaldeyrisborði Glitnis.