Litlar breytingar urðu á hráolíuverði í Asíu í nótt og í morgun þrátt fyrir að OPEC ríkin boði frekari niðurskurð í framleiðslu. Verð á hráolíu til afhendingar í mars lækkaði um 6 sent tunnan í rafrænum viðskiptum á NYMEX markaðnum í New York og er tunnan seld á 39,97 dali. Tunnan af Brent Norðursjávarolíu er nú seld á 41,85 dali tunnan í viðskiptum í Lundúnum.