Kaupmáttur launa í janúar minnkaði að jafnaði um 9,4% síðastliðna tólf mánuði, samkvæmt mælingu Hagstofu Íslands. Hefur kaupmátturinn ekki minnkað jafnmikið að minnsta kosti í tvo áratugi.
Samanburðarhæfar mælingar á tólf mánaða breytingum á vísitölu kaupmáttar liggja ekki fyrir lengra aftur í tímann en til janúar 1990, þar sem samsetningu launavísitölunnar var breytt í janúar 1989.
Í janúar í fyrra hafði vísitala kaupmáttar launa undanfarna tólf mánuði aukist um 0,6%. Í febrúar byrjaði vísitala kaupmáttarins svo að dragast saman, þá um 0,2%. Vísitalan hélt áfram að dragast saman í þeim mánuðum sem á eftir komu og náði mestri lækkun í janúar síðastliðnum.
Launavísitala Hagstofunnar mældist 355,7 stig í janúar og hækkaði um 0,6%. Síðastliðna tólf mánuði hefur vísitalan hækkað um 7,5%.
Vísitala kaupmáttar launa sýnir breytingu launavísitölunnar umfram breytingu á vísitölu neysluverðs á hverjum tíma. Samkvæmt mælingu Hagstofunnar á neysluverðsvísitölunni, frá því í lok janúar síðastliðins, hafði hún hækkað um 18,6% á tólf mánaða tímabili fram til janúar 2009. Þess vegna dróst kaupmáttur launa saman á tímabilinu.