Gengi krónunnar lækkaði um 1,06% samkvæmt gengisvísitölu, sem Íslandsbanki reiknar út. Er gengisvísitalann 190,94 stig eftir viðskipti dagsins. Gengi Bandaríkjadals hækkaði um 1,5% gagnvart krónu og er 113,64 krónur. Gengi evru er 144,35 krónur og pundsins 161,93 krónur.