Landsframleiðslan varð 1465 milljarðar króna á síðasta ári jókst að raungildi um 0,3% frá fyrra ári, samkvæmt útreikningum Hagstofunnar. Þessi vöxtur kemur í kjölfar 5,5% vaxtar á árinu 2007.
Hagstofan segir, að rekja megi vöxt landsframleiðslunnar á liðnu ári öðru fremur rekja til útflutnings, sem jókst um 7%, og skýrist sú aukning að stórum hluta af mikilli aukningu á útflutningi afurða stóriðju. Á sama tíma dróst innflutningur saman um 18%. Þjóðarútgjöld drógust saman um 9,3%.
Landsframleiðsla er talin hafa dregist saman um 0,9% að raungildi frá 3. ársfjórðungi til 4. ársfjórðungs 2008 en um 1,5% frá sama tímabili árið 2007. Þjóðarútgjöld drógust saman um 14% milli þriðja og fjórða ársfjórðungs þar sem einkaneysla dróst saman um 15% og fjárfesting um tæplega 14%. Samneysla óx hins vegar um 2,4% frá 3. ársfjórðungi 2008 til 4. ársfjórðungs.
Talið er að útflutningur hafi vaxið um 1,5% en innflutningur dregist saman um tæplega 33%.
Landsframleiðsla á 4 ársfjórðungi