Verð á hráolíu hefur hækkað lítillega í morgun í rafrænum viðskiptum á NYMEX markaðnum í New York eftir lækkun í gær. Verð á hráolíu til afhendingar í apríl hækkaði um 17 sent og er 43,78 dalir tunnan. Verð á Brent Norðursjávarolíu hækkaði um 50 sent og er 44,14 dalir tunnan.