Gengi krónunnar styrktist um 0,74% í dag og er gengisvísitalan 187,90 stig en var 188,31 stig við upphaf viðskipta. Gengi Bandaríkjadals er 112,74 krónur, evran er 142,41 króna og pundið stendur í 155,19 krónum en það hefur veikst um 2,35% gagnvart krónunni í dag. Danska krónan er 19,115 krónur og japanska jenið 1,1404 krónur.