Gengi krónunnar hefur veikst um 0,54% í morgun og stendur gengisvísitalan í 187,41 stigi en lokagildi hennar í gær var 186,40 stig. Bandaríkjadalur er í 111,34 krónum, pundið 153,46 krónur, evran 142,45 krónur og danska krónan 19,12 krónur, samkvæmt upplýsingum frá gjaldeyrisborði Íslandsbanka.