Neytendastofa mælist til þess við Símann að fyrirtækið stöðvi birtingar á auglýsingum sínum sem nú eru í gangi. Vodafone og Nova hafa kært birtingu auglýsinganna og telja að hún brjóti gegn lögum um eftirlit með viðskiptaháttum og markaðssetningu.
Í auglýsingunum má sjá gamalreynda fyrrverandi fréttamenn á ímynduðum blaðamannafundi spyrja Hilmi Snæ Guðnason leikara spjörunum úr þar sem borið er saman verð Símans og annarra símafyrirtækja.