Gengi krónunnar veiktist mikið í dag eða um 2,6% og stendur gengisvísitalan í 196,90 stigum. Var vísitalan 191,90 stig við upphaf viðskipta. Gengi Bandaríkjadals er 115,50 krónur, evran er 150,10 krónur, pundið er 162,69 krónur, danska krónan er 20,132 krónur og japanska jenið stendur í 1,1770 krónum, samkvæmt upplýsingum frá gjaldeyrisborði Íslandsbanka.