Sérstakur saksóknari og settur forstjóri Fjármálaeftirlitsins undirrituðu nýverið verklagsreglur til grundvallar samstarfi sínu. Í reglunum er m.a. kveðið á um samráðsfundi þar sem leitast er við að samræma verklag og skilgreiningu þeirra sakaratriða sem mál varða og þar sem skipst er á upplýsingum um stöðu mála og væntanlegar aðgerðir. Þá er einnig fjallað um nánari samvinnu og aðstoð við rannsókn einstakra mála.
Reglurnar hafa það markmið að greiða fyrir upplýsingaflæði milli aðila, stuðla að auknum skilningi á verkaskiptingu aðila og koma í veg fyrir að mál verði rannsökuð samtímis á fleiri en einum stað, að því er segir á vef FME.