Fjármálaeftirlitið hefur tekið ákvörðun um ráðstöfun skuldbindinga Straums – Burðaráss á Íslandi vegna innlána í höfuðstöðvum bankans á hér á landi. Innstæður munu flytjast yfir til Íslandsbanka hf. miðað við stöðu og áunna vexti á yfirtökudegi með ákveðnum takmörkunum tilgreindum í ákvörðuninni.
Allir skilmálar umræddra innlána um tímalengd, vaxtakjör, mynt o.þ.h. halda sér
óbreytt gagnvart Íslandsbanka hf., að því er fram kemur á vef FME.
Straumur – Burðarás fjárfestingabanki
hf. mun gefa út skuldabréf sem endurgjald fyrir hinar yfirteknu
innlánsskuldbindingar og skulu allar eignir Straums – Burðaráss
fjárfestingabanka hf. veðsettar til tryggingar fyrir
skuldabréfinu.
Skilanefnd Straums – Burðaráss fjárfestingabanka hf. er
falið að hrinda ákvörðun Fjármálaeftirlitsins í framkvæmd. Yfirfærsla innlána og
útgáfa skulda- og tryggingarskjala mun fara fram eigi síðar en kl. 9 nk. föstudag.