Greining Íslandsbanka spáir 0,3% hækkun vísitölu neysluverðs í mars. Ef spáin gengur eftir verður verðbólga, mæld á tólf mánaða tímabili, 16,2%. Hún er nú 17,6% en fór hæst í 18,6% í janúar síðastliðnum.
„Áhrif gengishruns krónu á haustmánuðum í fyrra eru nú að fjara út, og raunar eru þegar farin að sjást merki um jákvæð áhrif gengisstyrkingar síðustu mánaða í þeim liðum VNV sem hraðast bregðast við gengisbreytingum, s.s. innfluttri ferskvöru og eldsneyti.
Á móti koma áhrif af útsölulokum sem enn gætir í liðum á borð við föt og skó, sem og húsgögn og heimilisbúnað. Póst- og símakostnaður mun að mati okkar einnig hækka talsvert í kjölfar verðskrárhækkunar annars af stóru símafyrirtækjunum.
Áhrif annarra liða munu verða minni ef spá okkar gengur eftir," að því er segir í verðbólguspá Greiningar Íslandsbanka.
Deildin telur að verðbólga muni halda áfram að minnka það sem eftir lifir árs. „Djúp efnahagslægð gengur nú yfir Ísland, atvinnuleysi stefnir í sögulegar hæðir, verðlækkun mun einkenna íbúðamarkað á komandi ársfjórðungum og hrávöruverð hefur lækkað verulega frá miðju síðasta ári á heimsmarkaði. Auk heldur hefur krónan sótt talsvert í sig veðrið frá síðasta fjórðungi nýliðins árs og gerum við ráð fyrir að frekari styrking sé í pípunum á meðan núverandi gjaldeyrishöft og háir skammtímavextir eru við lýði.
Allt leggst þetta á eitt við að halda aftur af hækkun VNV. Þannig spáum við að verðbólga verði komin niður fyrir 4% í upphafi næsta árs og að verðbólgan verði undir 2,5% markmiði Seðlabankans allan seinni hluta þess árs."