Úrvalsvísitalan hækkaði um 1,66% í Kauphöll Íslands og er lokagildi hennar 575,8 stig. Icelandair lækkaði um 40,8% og Marel um 2,32%, Eimskip hækkaði um 33,33% í sáralitlum viðskiptum, 41 þúsund krónur. Lokaverð Eimskip er 1 króna en bréf félagsins eru á athugunarlista kauphallarinnar. Færeyjabanki hækkaði um 1,89%. Lítil velta var með hlutabréf í dag eða 60 milljónir króna. Veltan með skuldabréf nam 13,9 milljörðum króna.