Gengi krónunnar hefur veikst um 0,25% það sem af er degi og stendur gengisvísitalan í 199,90 stigum. Gengi Bandaríkjadals er 113,48 krónur, pundið er 164,20 krónur, danska krónan er 20,7 krónur og evran 154,30 krónur, samkvæmt upplýsingum frá gjaldeyrisborði Íslandsbanka.