Stjórn Sparisjóðs Bolungarvíkur hefur óskað eftir því við fjármalaráðherra að nýtt verði heimild laga og sparisjóðnum lagt til nýtt eigið fé sem nemur 20% af bókfærðu eigin fé eins og það var í árslok 2007. Samkvæmt samstæðu ársreikningi sparisjóðsins nam eigið fé í árslok 2007 alls kr. 2.006.167.000,-. Miðað við ákvæði áður nefndra laga og reglna er því heimilt að leggja sparisjóðnum til fjárhæð sem nemur kr. 401.233.000,-.