Á árinu 2008 var tap af rekstri samstæðu Landsvirkjunar 344,5 milljónir Bandaríkjadala, sem svarar til 39,3 milljarða íslenskra króna á gengi dagsins í dag, en rekstrarhagnaður fyrir fjármagnsliði og skatta (EBIT) var 246 milljónir Bandaríkjadala. Á árinu 2007 nam hagnaður Landsvirkjunar 459,3 milljónum dala, sem svarar til 52,4 milljarða króna á gengi dagsins í dag.
Ársreikningur Landsvirkjunar er í Bandaríkjadölum sem er starfrækslugjaldmiðill Landsvirkjunar frá og með ársbyrjun 2008. Samanburðartölur fyrir árið 2007 hafa verið umreiknaðar á lokagengi Bandaríkjadals gagnvart íslenskri krónu í árslok 2007.
Eiginfjárhlutfall 29,8%
Handbært fé frá rekstri nam 184,4 milljónum Bandaríkjadala. Í árslok námu heildareignir samstæðunnar 4.619,2 milljónum Bandaríkjadala og eigið fé nam 1.376,8 milljónum Bandaríkjadala. Eiginfjárhlutfall er 29,8% í árslok 2008.
Rekstrartekjur aukast um 83 milljónir Bandaríkjadala sem er að verulegu leyti vegna aukinnar orkusölu með tilkomu Kárahnjúkavirkjunar. Rekstrarkostnaður án afskrifta nam 100,5 milljónum Bandaríkjadala á árinu en var 105,8 milljónir Bandaríkjadala árið áður. Fjármagnsgjöld umfram fjármunatekjur námu 660,6 milljónum Bandaríkjadala sem skýrist aðallega af lækkun á virði innbyggðra afleiða í orkusölusamningum sem tengdir eru álverði og gengistapi, að því er segir í tilkynningu frá Landsvirkjun.
Ekki ráðist í nýjar framkvæmdir nema takist að afla nýrra langtímalána
Gengistapið og gangvirðisbreytingar eru að mestu leyti óinnleyst. Meðalnafnvextir langtímalána voru um 4,51% á árinu 2008 en þeir voru um 4,69% árið áður.
„Gengisþróun og gangvirðisbreytingar á innbyggðum afleiðum munu sem áður ráða miklu um afkomu Landsvirkjunar í ár. Fyrirtækið hefur aðgang að lausafé og lánum sem ásamt fé frá rekstri mun tryggja að fyrirtækið getur mætt núverandi skuldbindingum sínum á þessu og næsta ári. Landsvirkjun mun ekki ráðast í nýjar framkvæmdir nema að félaginu takist að afla nýrra langtímalána," að því er segir í tilkynningu.