Hlutabréf hækkuðu mikið í verði í viðskiptum í kauphöllinni á Wall Street í kvöld og er það rakið til ráðstafana, sem bandarísk stjórnvöld kynntu í morgun og eiga að auka lausafé og gera þarlendum bönkum kleift að lána fyrirtækjum og einstaklingum fé.
Dow Jones hlutabréfavísitalan hækkaði um 6,84% og er 7775 stig, Nasdaq vísitalan hækkaði um 6,76% og er 1555 stig og S&P vísitalan hækkaði um 7,03% og er 822 stig. Gengi bréfa deCODE lækkaði hins vegar um 2,2% og er 20 sent.