Skilanefnd SPRON hefur sent frá sér tilkynningu um að þeir sem hafa áhuga á verðmætum í eigu SPRON geta haft samband við skilanefndina og óskað eftir frekari upplýsingum með því að senda tölvupóst á skilanefnd@spron.is. Áhugasamir eru beiðnir um að setja sig í samband við skilanefndina fyrir klukkan tólf á hádegi á morgun, þriðjudaginn 24. mars.
Í skilanefnd SPRON sitja: Hlynur Jónsson, hdl. , formaður, Davíð Arnar Einarsson, löggiltur endurskoðandi, Feldís Lilja Óskarsdóttir, hdl., Guðrún Torfhildur Gísladóttir, löggiltur endurskoðandi og Jóhann Pétursson, hdl.